Sá mús inni í skáp í eldhúsinnréttingunni

Sá mús inni í skáp í eldhúsinnréttingunni, einhver ráð?
Þakka þér fyrir að koma á síðuna :-)

Músin sást inni í skúffunni, smágat við endann í skápnum var nóg

Músin sást inni í skúffunni, smágat við endann í skápnum var nóg

Vantar þig að losna við mýs
hafðu samband 6997092

Ef þú sérð mús inni í eldhús-
innréttingunni fáðu aðstoð.

Músin getur farið inn í
sökkulinn og valdið skemmdum.

Þar geta verið rör og leiðslur.

 

Uppþvottavélin sjáið bilið við gólf mjög aðuvelt fyrir mús að komast inn í sökkul og inn í skúffur

Uppþvottavélin sjáið bilið við gólf mjög aðuvelt fyrir mús að komast inn í sökkul og inn í skúffur

Í þessu tilfelli sást músin
þegar skúffa var opnuð.

Það má nærri geta að frúin hrökk við.

En hún var fljót að hugsa.

Skúffan var tekin og sett út.

En þá kom í ljós að músin hafði
stokkið á neðri skúffuna og inn í sökkul.

 

Á gólfinu var rist. Þar er heitu lofti blásið inn í íbúð, þarna getur mús farið niður

Á gólfinu var rist. Þar er heitu lofti blásið inn í íbúð, þarna getur mús farið niður

það var úr vöndu að ráða.

Meindýraeyðir kallaður
til og settar upp varnir.

Það getur tekið tíma að ná músinni.

Með þolinmæði gæti það tekist.

Afar miklu máli skiptir
að velja réttar aðferðir.

 

 

Músakassi veiðir mýs lifandi, þarf samt að fylgjast vel með

Músakassi veiðir mýs lifandi, þarf samt að fylgjast vel með

Varnir eru mismunandi.

Það fer eftir aðstæðum hvað hentar.

Hægt er að veiða mýs lifandi
og sleppa út í náttúruna langt
frá þar sem hún veiðist.

Mitt ráð: Ekki gera alls ekki neitt.

Vantar þig að losna við mýs
hafðu samband 6997092

Það sem lesendur hafa líka skoðað :-)

Músavarnir, einstaklingar, fyrirtæki, húsfélög

Starahreiður starafló gamalt hreiður, hvað geri ég?

Geta veggjalús komið með notuðum húsgögnum og fötum?

Hvaða leið fór músin inn í bílskúrinn?

Mús á milli loftklæðningar og þaks

Músavarnir úti, hvað er hægt að gera?

Eitrað fyrir hambjöllum daginn eftir sáust silfurskottur

Leave a Reply