Hamgæra er hægt að eitra?

Hamgæra er hægt að eitra?
Takk fyrir að koma á síðuna :-)

Hafið samband  eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna starahreiður.

hambjalla séð ofan frá

hambjalla séð ofan frá

Já það er hægt að eitra fyrir hamgæru.

Undribúningur í samráði við
meindýraeiðir er mikilvægur.

Meðan að eitrun fer fram er einungis
meindýraeiðir að störfum.

Eftir fjórar klukkustundir er í
lagi að koma aftur í íbúð.

 

hambjallan séð neðan frá

hambjallan séð neðan frá

Eitrið getur valdið sviða eða ónotatilfinningu.

Meindýraeiðir er með sérstaka grímu til að hindra eitrinu aðgang að öndunarfærum.

Hamgærum líður vel Innanhúss við
þurrar, upphitaðar aðstæður.

Fullorðnar bjöllur eru langflestar á 
ferli á vorin og fyrri hluta sumars.

 

hambjalla lirfa

hambjalla lirfa

Þeim fækkar eftir því sem líður á sumarið.

Þær sjást þó stöku sinnum á öðrum ástímum.

Fullorðin dýr eru skammlíf og nærast ekki.

Eingöngu kvendýr finnast og lirfur 
skríða því úr ófrjóvguðum eggjum.

 

Hambjalla púpan

Hambjalla púpan

Hvert dýr verpir um 20 eggjum 
sem klekjast á um tveim vikum.

Þroskatími lirfa er mislangur
og ræðst af aðstæðum.

Algengt er að uppvöxtur taki
eitt ár sem merkir eina kynslóð á ári.

 

svona er ringrásin

svona er ringrásin

Lirfurnar geta verið án vatns og
næringar í marga mánuði við stofuhita.

Þær taka sér fæðu einna helst úr dýraríkinu.

Dauð skordýr eru mjög eftirsóknar-
verð og þegar bjöllur drepast eru
þær umsvifalaust étnar upp.

 

Silfurskotta, hægt er að eitra fyrir silfurskottu

Silfurskotta, hægt er að eitra fyrir silfurskottu

Skordýrasöfn eru því afar
viðkvæm fyrir ágangi hamgæra.

Uppstoppuð dýr og fuglar verða
fyrir barðinu á bjöllunum

Uppþornað kjötmeti, harðfiskur, skinnavara, gróft kornmeti, plöntusöfn eru einnig á matseðlinum.

Hamgærur þola illa frost.

 

krosskönguló

krosskönguló er algeng könguló, hægt er að eitra fyrir henni

Frystingu við -10°C þola þær í
16 stundir, en snögga -20°C
frystingu þola þær aðeins í eina klukkustund.

Mælt er með frystingu í allt að tvo sólarhringa.

Frystikista dugar því vel til að drepa hamgærur.

Mitt ráð: Ekki gera ekki neitt

Hafið samband  eða hringið í
6997092 ef ykkur vantar aðstoð
við að losna starahreiður.

Leave a Reply